Forrit
Forrit
Hér getur þú sótt ýmis gögn til Getrauna:
Getraunaseðill: getraunaseðlar fyrir enska og ítalska boltann. Getraunaforritið og Gettó nota þessa seðla.
Tímabil: EKKI LENGUR Í NOTKUN.
Slóð: hér getur þú skráð slóðina þar sem gögnin eru skrifuð. Getraunaforritið er venjulega á C:\GETR\ og Gettó á C:\ISLGETR\VISGETTO\
Þú merkir við leikvikuna sem þú vilt sækja og smellir svo á Sækja og þá eru valin gögn flutt á harða diskinn þinn.
(Ef þú sérð ekki gluggann hér til hægri þá er líka hægt að sækja sömu gögn á ftp.toto.is/GetVis/1X2/Leikskra/ en þá þarf að afrita þær skrár sem þú vilt í C:\GETR\ möppuna fyrir getraunaforritið og í C:\ISLGETR\VISGETTO\ möppuna fyrir Gettó.)
Ef þú lendir í vandræðum getur þú sent póst til tippa@toto.is og þér verður svarað við fyrsta tækifæri.
Almennt um getraunaforrit
Íslenskar getraunir hafa um árabil boðið tippurum upp á þá þjónustu að taka á móti getraunaröðum á tölvutæku formi. Hér er hægt að nálgast tvö vinsæl forrit sem útbúa raðir..
Getraunaforrit ÍG
Getraunaforrit ÍG er gamalt en gott DOS forrit sem nota má til að útbúa raðir samkvæmt úrvali af S og R kerfum. Hægt er að sækja getraunaseðla fyrir hverja viku, hér að ofan, en þeim fylgja ýmsar tölfræðilegar upplýsingar. Forritið er sótt hér.
Gettó
Gettó er öflugt og vinsælt getraunaforrit í Windows útgáfu. Kerfið býður upp á um 2000 getraunakerfi og stórkostlega grisjunarmöguleika. Inn í kerfið hefur verið bætt gamla getraunaforritinu frá Getraunum. Forritið er hægt að nálgast hér.

