Fréttir
Lottó 5/40 - úrslit 26. september
Heppinn Lottóspilari var einn með allar aðaltölurnar réttar að þessu sinni og hlýtur hann rúmlega 5 milljónir í vinning. Lukkumiðinn var keyptur í Hyrnunni í Borgarnesi. Einn fékk bónusvinninginn og fær hann 187.740 krónur í sinn hlut. Miðann keypti hann í Shell Litlatúni, Garðabæ. Tveir unnu 100.000 krónur í Jókernum og voru miðarnir seldir í Bónusvídeó, Hraunbæ 121, Reykjavík og N1 Söluskála á Egilsstöðum.

