Fréttir
Víkingalottó - úrslit 21. október
Það var Dani sem datt aldeilis í lukkupottinn að þessu sinni þegar hann var einn með tvöfaldann 1. vinning í Víkingalottóinu að þessu sinni. Að auki var ofurtalan ein af aðal tölunum og fær hann rétt tæpar 600 milljónir í sinn hlut. Einn fékk hinn al-íslenska bónusvinning og fær hann 1.305.060 krónur. Vinningsmiðinn var keyptur í Grillhöllinni, Kirkjustétt 2-6 í Reykjavík.Tveir unnu 100.000 krónur í Jókernum og keyptu þeir miðana í Hagkaupum Smáralind, Kópavogi og Shellstöðinni, Laugavegi 180, Reykjavík.

