Fréttir

Ætlar að einbeita sér að tónlistinni

26.10.2009

Það var aldeilis heppinn ungur maður sem keypti sér 10 raða sjálfvalsmiða með Jóker á N1 Gagnvegi síðastliðinn föstudag. Hann fór ásamt vini sínum og keyptu þeir sér sitthvorn Lottó miðann. Það var svo vinur vinningshafans sem hringdi í hann á sunnudag þegar vinurinn vissi hvar vinningsmiðinn hafði verið seldur sem varð til þess að vinningshafinn leit á textavarpið og sá að hann hafði heldur betur haft heppnina með sér. 

Ekki aðeins hafði vinningshafinn haft allar fimm tölurnar réttar í Lottóinu og unnið þar með 24.742.400 krónur heldur var hann einnig með fjórar réttar tölur í Jókernum og bætti þar með 100 þúsund krónur við fyrsta vinning í Lottóinu. Vinningshafinn var mættur til Íslenskrar getspár við opnun í morgun og hann stefnir á að hætta í vinnunni sem hann er í, einblína sér að tónlistinni og leggja grunn að góðri fjárhaglegri framtíð.



 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.