Fréttir
Vinningshafinn kominn fram
Vinningshafinn frá síðasta laugardag er búinn að kíkja í heimsókn til okkar hingað í Getspá með vinningsmiðann. Hann er utan af landi en átti leið um Hafnarfjörðinn fyrir hádegi sl. laugardag og stoppaði í N1 við Lækjargötu til að taka bensín og keypti Lottómiða í leiðinni.
Vinningshafinn sleppir því yfirleitt ekki að kaupa sér Lottó og hefur verið að vinna smávinninga annað slagið en fékk reyndar fjóra rétta í þar síðustu viku. Það hefur greinilega verið upphitun því að næst var hann einn með allar fimm tölurnar réttar og vann rúmar 5 milljónir. N1 við Lækjargötu er greinilega „heitur“ Lottóstaður en í lok júlí var seldur þar vinningsmiði með 46 milljóna króna vinningi. Íslensk getspá óskar vinningshafanum innilega til hamingju með milljónirnar.

