Fréttir
Lottó 5/40 - 2faldur næst !
Enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni og verður 1. vinningur því 2faldur í næstu viku. Einn var með fjórar réttar tölur auk bónustölunnar og hlýtur hann rúmlega 200 þúsund í vinning. Miðinn var seldur í Ak-inn við Hörgárbraut á Akureyri. Einn var með allar tölurnar réttar - í réttri röð í Jóker og hlýtur 2 milljónir í vinning, sá miði var seldur í Olís á Kjalarnesi. Fjórir voru með 4 réttar tölur í réttri röð í Jóker og þeir miðar voru seldir á eftirtöldum stöðum; Snarlbarnum við Hlemm í Reykjavík, Olís við Gullinbrú í Reykjavík, Skeljungi við Litlatún í Garðabæ og einn miði er í áskrift.

