Fréttir

1. vinningur í Víkingalottóinu til Íslands

11.11.2009

Tveir heppnir Víkingalottóspilarar skiptu með sér tvöföldum potti kvöldsins og fékk hvor um sig 107.433.890 krónur og var annar miðinn seldur í Noregi og hinn hér á landi. Nánar tiltekið í Videómarkaðnum Hamraborg.  Þetta er í 15. skipti sem fyrsti vinningur í Víkingalottóinu kemur til Íslands og er þetta jafnframt stærsti vinningurinn til þessa og sannarlega dýrmætur gjaldeyrir fyrir þjóðarbúið.  Vinningsmiðinn er 10 raða sjálfvalsmiði án Jókers sem kostaði 500 krónur og var seldur í dag, miðvikudag.  Við óskum þessa heppna vinningshafa innilega til hamingju og biðjum alla sem leið áttu um Videómarkaðinn í dag og versluðu sér Víkingalottómiða að skoða miðann sinn vel.  Íslendingar voru sannarlega heppnir í dag því annar heppinn spilari vann sér inn 2 miljónir í Jóker og keypti sá miðann sinn hjá N1 við Ægissíðu í Reykjavík.

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.