Fréttir
6 fjölskyldur skipta á milli sín 107 milljónum
Það voru ánægð en hógvær eldri hjón sem heimsóttu okkur í Íslenska getspá í dag með vinningsmiða upp á rúmlega 107 milljónir króna. Hjónin spila reglulega í Lottói og Víkingalottói ásamt 5 börnum sínum. Þau horfðu á útdráttinn í sjónvarpinu á miðvikudaginn og skrifuðu niður 5 tölur og voru mjög ánægð með að vera með 5 tölur réttar og vinna sér inn 16.500 krónur það kæmi sér jú vel fyrir jólin.
Þau urðu svo heldur betur hissa þegar þau skoðuðu úrslitin á textavarpinu og tóku eftir tölunni 19 sem þau höfðu gleymt að skrifa niður og í ljós kom að þau höfðu unnið sér inn rúmlega 107 milljónir en ekki bara 16.500 sem þau höfðu þó verið mjög glöð með. Hjónin voru ánægð með að þar sem fjölskyldan spilar alltaf saman var búið að ákveða fyrirfram hvernig vinningnum yrði skipt niður og því skiptist þessi stærsti vinningur til þessa á milli sex fjölskyldna sem kemur sér svo sannarlega vel. Hjónin sem bæði eru hætt að vinna ætla ekki að láta vinninginn breyta miklu í sínu lífi en þetta kemur sér auðvitað mjög vel í viðbót við ellilífeyrinn og kemur til með að nýtast vel á næstu árum. Starfsfólk Getspár óskar vinningshöfunum innilega til hamingju með þennan frábæra vinning.

