Fréttir
Súper sunnudagur
Þrír stórleikir verða í boði á Lengjunni og Tippað í beinni á sunnudaginn. Veislan hefst með baráttunni um Bítlaborgina þegar Everton mætir Liverpool kl. 13.30. Kl. 16.00 hefst Lundúnaslagur Arsenal og Chelsea en liðin eru í fyrsta og þriðja sæti úrvalsdeildarinnar. Hafi menn ekki fengið nóg af knattspyrnu lýkur veislunni með baráttunni um Spán þegar Barcelona tekur á móti Real Madrid kl. 18.00. Gerðu leikinn enn skemmtilegri og tippaðu á Lengjuna eða veldu einn af möguleikunum sem boðið er upp á í Tippað í beinni.

