Fréttir
Tveir nýjir Lottómilljónamæringar
Vinningshafinn horfði á útdráttinn í sjónvarpinu um kvöldið en það var ekki fyrr en eftir miðnætti sem hann leit á textavarpið og sá á fjórða miðanum sem að hann skoðaði að þar var hann með þrjár réttar tölur. Hann skoðaði svo miðann betur og sá þá að hann hafði haft allar fimm tölurnar réttar. Hann öskraði upp og hljóp inn í herbergi til móður sinnar sem hélt að eitthvað alvarlegt hafði gerst en það var mikil gleði þegar hann sagði henni að hann hefði unnið 30 milljónir í Lottó. Vinningshafinn ætlar að hugsa vel hvað hann gerir við peninginn en ætlar að byrja á að kaupa sér sjálfskiptan bíl sem hann getur ferðast á um landið því það hefur hann mjög gaman af. Hinn vinningshafinn keypti sér miða í Samkaup Strax á Flúðum. Þetta er fjölskyldumaður með tvö börn og búa þau í höfuðborginni en voru í helgarferð í sumarbústað á Flúðum. Það var ekki fyrr á sunnudagskvöldið á leiðinni heim að þau skoðuðu miðann en þau höfðu heyrt í útvarpinu að annar vinningsmiðinn hefði einmitt verið seldur á Flúðum og fengu að sögn smá fiðring í magann við þær fréttir. Miðinn var dreginn upp og yfirfarinn og viti menn.... draumurinn hafði ræst, rúmlega 30 milljónir í vasann hjá þessari heppnu fjölskyldu. Íslensk getspá óskar báðum vinningshöfum innilega til hamingju með vinningana

