Fréttir
Lottó 5/40 - úrslit 2. janúar
Fyrsti lottómilljónamæringur ársins 2010 hefur litið dagsins ljós. Þessi stálheppni miðaeigandi keypti miðann sinn í Tvistinum í Vestmannaeyjum og var hann einn með allar fimm tölurnar réttar. Þetta er 5 raða miði og ekki nóg með það að hafa allar tölurnar réttar í einni röðinni þá var hann með 4 réttar tölur auk bónustölu í annarri röðinni og 4 réttar tölur í öllum hinum þremur röðunum. Hann vann því samtals tæpar 10,3 milljónir á þessar lukkutölur.

