Fréttir
Töf á útborgun í Lengjunni
Töf verður á útborgun vinninga í Lengjunni í samsetningum sem innihalda frestaða leiki. Ástæða þessa er að komið hefur upp villa í kerfisseðlum þegar tveim leikjum eða fleirum í samsetningu er frestað. Verið er að vinna að lagfæringu og er vonast til að útborgun geti farið fram á þriðjudag. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

