Fréttir
Margir Lottómilljónamæringar í janúar
Hann kallaði fréttirnar til konunnar sem sagðist hafa keypt miða. Konan náði í miðann og maðurinn las upp tölurnar og alltaf sagði konan já við erum með þessa tölu og þau voru svo heppin að hafa allar 6 tölurnar réttar og vera núna nýjustu Lottómilljónamæringar landsins. Hjónin voru mjög yfirveguð og sögðu að töluverð umfjöllun væri á Skaganum með hver gæti verið hinn nýji Lottómilljónamæringur og sögðust þau bara taka þátt i þeirri umfjöllun og hafa gaman af. En þessi heppnu hjón eru ekki einu Lottómilljónamæringar þessar árs því Lottóspilarar hafa verið óvenju heppnir á þessu ári. Fyrsti Lottómilljónamæringur ársins er sá sem keypti miðann sinn í Tvistinum í Vestmannaeyjum 2. janúar og er hann búinn að gefa sig fram. Hann keypti sér 5 raða miða og ekki nóg með það að hafa allar tölurnar réttar í einni röðinni þá var hann með 4 réttar tölur auk bónustölu í annarri röðinni og 4 réttar tölur í öllum hinum þremur röðunum. Hann vann því samtals tæpar 10,3 milljónir á þessar lukkutölur. Tölurnar á miðanum hans eru aldeilis ekki valdar af handahófi, en hann notar afmælisdaga fjölskyldunnar.
Miðaeigendurnir sem keyptu miðann í Vídeómarkaðunu í Kópavogi um síðustu helgi eru búnir að gefa sig fram. Hinir heppnu vinningshafar eru ungt par sem er nýlega búið að fjárfesta í sinni fyrstu íbúð. Þau kaupa sér iðulega Lottó og að þessu sinni ákváðu þau að vera rausnarleg og keyptu sér 10 talna sjálfvals - kerfisseðil sem margborgaði sig þar sem þau fengu 487.500 kr. í aukavinninga eða samtals rúmlega 3 milljónir. Kaupendur hins vinningsmiðans frá því um síðustu helgi voru eldri hjón sem áttu leið framhjá N1 Skógarseli, voru að verða bensínlaus og ákváðu að taka einn Lottómiða um leið og þau fylltu bílinn af bensíni. Sannarlega heppin þar. Enn bíðum við hjá Íslenskri getspá þó eftir vinningshafanum frá því 9. janúar síðastliðinn en viðkomandi keypti 10 raða sjálfvalsmiða með Jóker í Söluturningum Tröllinu, Spönginn seinnipartinn á útdráttardegi. Þess heppna Lottóspilara bíður því fyrsti vinningur upp á rúmlega 5 milljónir króna. Íslensk getspá óskar öllumvinningshöfum ársins til hamingju með vinningana.

