Fréttir

Vinningshafi kominn í leitirnar

26.1.2010

Fyrir síðustu helgi sendi Íslensk getspá út tilkynningu í fjölmiðla þar sem var leitað að vinningshafa frá 9. janúar s.l. en þá kom 1. vinningur á miða sem var seldur í söluturninum Tröllinu í Spönginni í Reykjavík og var vinningshafi ekki búinn að gefa sig fram. Meðal þeirra sem lásu þessa tilkynningu var herramaður – rétt rúmlega fimmtugur fjölskyldumaður. Hann minnti að hann hefði keypt miða á þessum tiltekna sölustað en þar sem hann lá og las blaðið sitt á sunnudaginn nennti hann ekki að standa upp og gá í veskið sitt.  Hann mundi svo aftur eftir miðanum þegar hann var að keyra eftir Breiðholtsbrautinni í gær (mánudag) og ákvað að hringja í Getspá til að athuga að gamni sínu hvort vinningsmiðinn væri fundinn og fékk þau svör að svo væri ekki.

Starfsmaðurinn spurði hvort hann væri með miðann í höndunum og bað hann að lesa upp númerið á honum. Það var slegið inn í kerfið og það var ekki um það að villast að þarna var „týndi“ miðinn kominn í leitirnar með vinningi upp á rúmlega 5 milljónir króna. Starfsmaður sagði við manninn að það væri góður vinningur á miðanum og spurði hvort hann væri tilbúinn að fá fréttirnar. Það kom smá þögn í símann áður en maðurinn sagði; „bíddu aðeins, ég ætla að leggja bílnum fyrst“. Og það var eins gott að hann gerði það því að þessar fréttir komu honum virkilega á óvart og hann var góða stund að jafna sig á þeim fréttum að hann væri orðinn Lottómilljónamæringur. Hann var ennþá hálf titrandi yfir fréttunum þegar hann kom í afgreiðslu Getspár seinna um daginn með miðann en var þó alveg búinn að ákveða að hann ætlar að njóta lífsins fyrir vinninginn – og kannski borga smá skuldir.

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.