Fréttir
Víkingalottó - tvöfaldur næst!
Fyrsti vinningur verður tvöfaldur næsta miðvikudag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti vikunnar. Potturinn verður a.m.k. 280 milljónir og ofurtölupotturinn er komin yfir milljarð, þannig að það er eins gott að muna eftir að kaupa miða fyrir kl. 17.00 þann 3. febrúar n.k. Þrír unnu 100.000 krónur í Jókernum. Tveir vinningsmiðanna eru í áskrift en sá þriðji var keyptur í Skeljungi, Skagabraut 43 á Akranesi.

