Fréttir
Víkingalottó 3faldur næst !
Það verða ævintýralegar upphæðir í boði í Víkingalottóinu í næstu viku þar sem tvöfaldur 1. vinningur gekk ekki út í þessari viku og Ofurpotturinn þar af leiðandi ekki heldur. Áætlað er að vinningur fyrir 6 réttar tölur og Ofurtöluna verði 1,6 milljaður króna.
Einn heppinn miðaeigandi var hins vegar með 5 tölur réttar auk bónustölunnar og hlýtur hann tæpar 14 milljónir í vinning. Hann keypti miðann sinn í Snælandi við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði. Annar heppinn var með allar réttar tölurnar í réttri röð í Jókernum og hlýtur hann 2 milljónir í vinning. Sá keypti þennan happamiða í N1 við Stórahjalla í Kópavogi.

