Fréttir
Lottó 5/40 - fimmfaldur pottur næst!
Enginn var með allar tölurnar réttar í Lottóinu að þessu sinni og verður fyrsti vinningur því fimmfaldur næsta laugardag. Tveir skiptu bónusvinningnum á milli sín og fær hvor 232.800 krónur. Annar miðanna var keyptur á heimasíðu Getspár/Getrauna - www.lotto.is - en hinn er í áskrift. Einn var með allar tölurnar í réttri röð í Jókernum og fær hann í sinn hlut 2 milljónir króna. Vinningsmiðinn var seldur í versluninni Urð á Raufarhöfn. Tveir unnu 100.000 krónur í Jókernum og var annar miðinn keyptur í Jolla, Helluhrauni 2, Hafnarfirði en hinn á www.lotto.is

