Fréttir

Milan - Man. Utd.

15.2.2010

Leikið verður í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í vikunni. Á morgun þriðjudag mætast AC Milan og Manchester United og fær David Beckham sína gömlu félaga í heimsókn til Milan. United hefur aldrei tekist að komast áfram í Meistaradeildinni þegar liðið hefur mætt AC Milan. Verður áhugavert að fylgjast með leiknum og að sjálfsögðu er hægt að tippa á leikinn á Lengjunni og tippa í beinni hér á síðunni. Í hinum Meistaradeildarleik kvöldsins mætast Lyon og Real Madrid.

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.