Fréttir

Víkingalottó - úrslit 3. mars

3.3.2010

Norðmenn höfðu heppnina með sér þegar dregið var í þreföldum potti í útdrætti vikunnar.  Einn miði var með allar sex tölurnar réttar og hlaut þessi heppni norðmaður rúmlega 680 milljónir í vinning.  Hins vegar gekk ofurpotturinn ekki út og áætlum við að hann verði allt að 1,630 milljónir króna í næstu viku.  Einn var með fimm réttar tölur auk bónustölunnar - hinn alíslenska bónusvinning - og hlýtur hann 3,7 milljónir í vinning.  Þessi miði var keyptur á heimasíðu Getspár/Getrauna - lotto.is   Sex miðar voru með fjórar réttar tölur - í réttri röð í Jóker.  Þeir voru seldir á eftirtöldum stöðum; N1 við Ártúnshöfða, Reykjavík - N1 við Fossvog í Reykjavík - Olís í Norðlingaholti, Reykjavík, á heimasíðu Getspár/Getrauna, lotto.is og tveir miðar voru seldir í Holtanesti, Melabraut í Hafnarfirði.

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.