Fréttir
Nýr Lottómilljónamæringur kominn fram
Vinningshafarnir eru ung hjón á Akureyri með 3 börn og af einhverjum orsökum voru þau búin að tala um það alla vikuna að þau yrðu að kaupa Lottómiða og því fór heimilisfaðirinn gagngert í þeim erindagjörðum í Hagkaup til að kaupa miða. Fjölskyldan horfði svo á útdráttinn í beinni útsendingu í sjónvarpinu og vissi því strax að þau höfðu unnið stóran Lottóvinning. Ferðin í Hagkaup til að kaupa Lottó á laugardaginn borgaði sig svo sannarlega og kemur vinningurinn sér afar vel, fjölskyldan ætlar að byrja á að borga skuldir og svo er draumur um að fara á ferð til að sjá formúlukeppni ofarlega á óskalistanum. Íslensk getspá óskar vinningshöfunum innilega til hamingju með vinninginn.

