Fréttir

Ævintýraferð í Kolaportið skilaði milljónum

30.4.2010

Hinir lukkulegu vinningshafar sem keyptu miða í Kolaportinu sl. laugardag og unnu rúmlega 10,5 milljónir á hann eru búnir vitja vinningsins.   Þetta eru hjón á besta aldri en konan hafði kíkt í  ævintýraferð í Kolaportið með barnabörnin og ákvað að kaupa sér nokkrar Lottóraðir en þau segjast kaupa sér miða eftir efnum og aðstæðum hverju sinni.  Aðstæður hafa nú aldeilis breyst hjá þeim enda áttu þau bágt með að trúa þessari heppni og líta björtum augum til framtíðar.

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.