Fréttir
Lottó 5/40 - úrslit 22. maí
Viðskiptavinur sem keypti sér 10 raða sjálfvalsmiða í Skeljungi við Kleppsveg í Reykjavík datt aldeilis í lukkupottinn en hann var einn með allar tölurnar réttar að þessu sinni og vann sér inn rúmlega 10,3 milljónir í tvöföldum potti. Þrír voru með fjórar réttar tölur - í réttri röð í Jóker og fá þeir 100 þúsund kall í vasann. Þeir keyptu miðana sína á eftirtöldum stöðum; Skeljungi á Akranesi, Heimamynd við Kleppsveg í Reykjavík og einn er með tölurnar sínar í áskrift.

