Fréttir
Víkingalottó - 1. vinningur til Íslands
Það var Íslendingur sem datt í lukkupottinn þegar dregið var í Víkingalottóinu í kvöld en aðeins einn miði var með allar tölurnar réttar og hlýtur hann því allan pottinn eða 98,7 milljónir. Miðinn var keyptur í Snælandi við Austurveg 46 á Selfossi og er 10 raða sjálfvalsmiði án Jókers og kostaði 500 krónur. Fimm miðar voru með 4 réttar tölur - í réttri röð í Jóker og voru þeir seldir á eftirtöldum stöðum; Siglósport á Siglufirði, Söluturninum Prinsinum við Þönglabakka í Reykjavík, Shellskálanum í Sandgerði, á heimasíðu Getspár-Getrauna og einn er í áskrift.

