Sjálfsalar

Kaup á miðum

Velja leik

ScreenShot_03Sjálfsalar eru komnir upp á nokkra staði. Í þeim er hægt að kaupa miða, athuga með vinninga og skoða leikskrár.
Sjálfsalarnir eru auðveldir í notkun en þeir eru búnir snertiskjá og þarf aðeins að fara eftir leiðbeiningum.

Settu leikspjald í rauf framan á sjálfsalanum eða veldu þann leik sem á að spila.

Þegar seðill hefur útfylltur og staðfest er greitt fyrir með því að renna kreditkorti í rauf framan á sjálfsalanum.


 

 


Sjálfval eða þínar tölur

ScreenShot_00

Þegar valin hefur verið leikur (í þessu tilfelli lotto) velur þú annað hvort sjálfval eða ferð í að velja þínar tölur.


 

 

 

 

 

 

 


Lottó / Víkinalottó

lotto_stanVeldur tölurnar þínar með því að styðja á viðkomandi tölur.

Kerfismiði er valinn með því að velja "Kerfi"

Þegar þú hefur fyllt út þær raðir sem þú ætlar að kaupa velur þú "Kaupa"

 

 

 

 

 




Staðfesta

ScreenShot_02Næst kemur upp á skjáinn mynd af miðanum þínum.

Þú velur:

"Til baka" ef þú vilt breyta miðanum

"Hætta" við ef þú vilt byrja upp á nýtt

"Staðfesta" ef þú vilt klára miðakaupin.

 

 

 

 




Ganga frá greiðslu
 stan
Settu kreditkortið í raufina framan á sjálfsalanum þegar þú færð meldingu um það og taktu það aftur út.

Taktu miðann þegar hann hefur verið prentaður. Upphæð miðanns verður skuldfærð á kortið.

 Vinningar lægri en 100.000 verða lagðir beint inn á sama kort og keypt var fyrir.


Hafir þú fengið stærri vinning þarftu að setja þig í samband við Íslenska Getspá varðandi útborgun vinnings.

 



Aðrirleikir

Sama ferli á við um leikina Víkingalottó, 1x2 og Lengjuna

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.