Spilareikningur

Spilareikningur

Getspá og Getraunir hafa tekið upp nýtt og endurbætt greiðslufyrirkomulag fyrir alla viðskiptavini sem versla á netinu. Er fyrirkomulagið í samræmi við það sem tíðkast víða erlendis. Með tilkomu spilareikningsins fá viðskiptavinir enn betra yfirlit yfir sín viðskipti. Viðskiptavinir millifæra af kreditkorti sínu upphæð að eigin vali. Hægt er að millifæra nákvæmlega þá upphæð sem ætlunin er að versla fyrir hverju sinni, eða millifæra hærri upphæð sem myndar inneign á spilareikningi sem hægt er að nota síðar. Lægri vinningar verða greiddir út á spilareikning viðskiptavina. Hver og einn getur tekið út af sínum spilareikningi og millifært til baka á kreditkort sitt hvenær sem er með mjög einföldum hætti. Engin breyting verður á greiðslu hærri vinninga en þá er haft samband við viðkomandi vinningshafa eins og verið hefur.

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.