Ábyrg spilahegðun

-Ábyrg spilahegðun -

Getspá Getraunir afla fjár til handa íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni og Öryrkjabandalaginu. Allur hagnaður af starfsemi fyrirtækjanna rennur til þessara aðila og gera fyrirtækin sitt besta til að hámarka hagnaðinn.

Fyrirtækin eru sér hinsvegar meðvituð um ábyrgð sína í íslensku samfélagi og gera sér grein fyrir því að starfseminni geta fylgt hættur svo sem spilafíkn. Getspá Getraunir taka þessa ábyrgð alvarlega og hafa á undanförnum árum gripið til aðgerða sem fela það í sér að stuðla að ábyrgri spilahegðun viðskiptamanna sinna.

Helstu aðgerðir fyrirtækjanna fela í sér eftirfarandi þætti:

  • Yngri enn 18 ára geta ekki spilað í leikjum fyrirtækjanna á netinu.
  • Söluaðilum er óheimilt að selja yngri en 18 ára leiki fyrirtækjanna.
  • Getspá/Getraunir takmarka upphæð sem viðskiptamenn mega spila fyrir á dag á netinu. Upphæðin er kr. 50.000-.
  • Getspá/Getraunir takmarka þá upphæð sem viðskiptamenn mega flytja inn á spilareikning sinn hvern dag. Upphæðin er kr. 50.000,-
  • Viðskiptamenn mega ekki eiga meira en kr. 100.000 inni á spilareikning sínum. Vinningsupphæðir umfram kr. 100.000 eru millifærðar á kreditkort viðkomandi viðskiptamanns.
  • Viðskiptamenn geta sjálfir takmarkað hámarksupphæðina sem þeir vilja spila fyrir á dag á netinu, svo framarlega sem hún er lægri en upphæðin sem Getspá Getraunir ákveður.
  • Viðskiptamenn geta tekið hlé frá þátttöku í leikjum fyrirtækjanna á netinu með því að loka sjálfir fyrir aðgang sinn að leikjum fyrirtækjanna. Viðskiptamenn geta valið frá 1 mánuði upp í 6 mánuði.
  • Í sjálfsölum Getspá/Getrauna er hámarskuppæð sem hver viðskiptavinur getur keypt fyrir á dag. Upphæðin er kr. 12.000,-
  • Getspá/Getraunir geta sett inn hámarksupphæðir á ákveðna sölustaði.
  • Getspá/Getraunir tryggja á sem bestan hátt að viðskiptavinir séu sér meðvitaðir um vinningshlutfall í leikjum fyrirtækjanna.
  • Getspá/Getraunir bjóða upp á fjármálaráðgjöf fyrir þá sem vinna stóra vinninga.
  • Getspá/Getraunir taka þátt í samstarfi við Evrópulóttóin um eftirlit með óeðlilegri hegður á spilamarkaði og tryggjum þannig eins og kostur er heilbrigðan og heiðarlegan markað.

Teljir þú þig eða einhvern þér nákominn eiga við spilavanda að stríða bendum við á eftirtalin samtök sem sérhæfð eru í að fást við slík mál.

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.