Fréttir

lotto

Annar býr erlendis en hinn ófundinn

27. mars 2024, 10:35

Íslensk kona sem er búsett á Norðurlöndunum var ein með allar tölur réttar í Lottó laugardaginn 16. mars síðastliðinn og fékk fyrsta vinning því alveg óskiptan, rétt tæpar
9 skattfrjálsar milljónir. Konan sem vinnur í heilbrigðisgeiranum, kom til landsins á dögunum til að taka á móti stóra vinningnum. Hún kaupir reglulega miða með Lottó-appinu og segir það ákveðna leið til að halda tengslum við landið sitt og alveg sérstaklega gaman að gera sér ferð hingað núna af þessu tilefni í kringum páskana.

Þessi lukkunnar pamfíll bauð ungri frænku sinni með til að vitja vinningsins hjá Íslenskri getspá enda hafði sú heppna hingað til mest spilað með sömu tölurnar, en í þetta skipti bætti hún afmælisdegi frænkunnar inn í happatölurnar – sem gerði útslagið. Það var svo skemmtileg auka-tilviljun að sú sem fékk fyrsta vinning á sama afmælisdag, og sá sem fékk bónusvinninginn þennan saman laugardag.

Í lokin má geta þess að vinningshafinn sem var með allar tölur réttar síðastliðinn laugardag hefur enn ekki gefið sig fram við Íslenska getspá. Vinningsmiðinn var sömuleiðis keyptur í appinu en þar eru einungis skráðar upplýsingar um heimasíma, sem aldrei er svarað í, og netfang sem er greinilega ranglega skráð eða orðið óvirkt. Spilarar sem nota appið eru því hvattir til að kíkja í símann og gá hvort þar leynist nokkuð fyrsti vinningur, upp á tæpar 9 milljónir króna frá síðasta laugardegi.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshöfunum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Lottó - tveir með 1. vinning

Það beit hressilega á agnið hjá tveimur spilurum sem tóku þátt í Lottó að þessu sinni en þeir skiptu með sér þreföldum potti og hlýtur hvor þeirra rétt tæplega 17,9 milljóna króna vinning.  Annar miðinn var keyptur á lotto.is en hinn í appinu. Einn var með 1. vinning í Jóker og fær hann 2ja milljóna króna vinning, miði... Lesa meira

lotto

Lottó - Þrefaldur næst!

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Heppinn áskrifandi var einn með bónusvinninginn og fær hann rúmar 960 þúsund krónur í sinn hlut. Fyrsti vinningur í Jóker gekk ekki út að þessu sinni en fjórir voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Tveir m... Lesa meira

lotto

Lottó - 2faldur næst!

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því tvöfaldur næsta laugardag. Bónusvinningurinn gekk heldur ekki út í þetta skiptið. Einn áskrifandi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær 2 milljónir króna í vinning. Sex miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 1... Lesa meira

lotto

Lottó - Einn með 1. vinning

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 9,8 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vefnum okkar, Lotto.is. Þá voru þrír aðrir með heppnina með sér en miðarnir þeirra færðu þeim bónusvinninginn sem er að þessu sinni rétt rúmar 150 þúsund krónur. Tveir m... Lesa meira

lotto

Vinningshafinn sá fréttirnar og hafði samband!

Lottóvinningshafinn sem var einn með allar tölur réttar um síðustu helgi er fundinn og er fyrir vikið hátt í 9 milljón krónum ríkari. Sú heppna hafði keypt miðann í appinu en var aðeins með heimasíma skráðan og úrelt netfang. Þegar fréttir tóku að birtast um leitina, kíkti hún því í appið og sá þar góðu fréttirnar og h... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir